7.2.2009 | 17:27
Fleiri myndir (loksins)
Jæja, þá dreif ég mig loksins í því að ganga frá síðustu kvikmyndunum sem ég er með frá Ragnari afa mínum. Reyndar er nú eitthvað meira í því efni sem ég er með, en það er af það slökum gæðum að það þjónar tæpast tilgangi að setja það hér inn. Ég tek reyndar eftir því að þessar wmv-myndir eru í frekar slakri upplausn, en upphaflegu myndirnar sem Gísli brenndi á disk eru í mun betri gæðum, svo ef einhvern langar í betri kópíu, þá er bara að láta mig vita!
Ég bætti líka inn nokkrum ljósmyndum í leiðinni (í ansi gömlu möppuna). Þetta skannaði ég eftir slides-myndum frá afa. En, annars vil ég endilega benda á síðuna hans Steina: 123.is/steini, þar eru ógrynni af gömlum myndum frá afa og hafa verið skrifaðar athugasemdir við all margar þeirra. Mjög gaman að skoða þetta.
Njótið vel.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:30 | Facebook
Athugasemdir
Gaman a`skoà -etta. _ sólalaust eins og er -ess vegna er ég á netinu. kve`ja frá Kanarí
mamma
Gu`r´Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 17:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning